Vindrof er þegar vindur flytur veðrað efni. Það gerist helst þar sem land er lítið eða ekkert gróið og skortir raka. Þá getur vindurinn lyft léttum jarðvegskorunum og borið þau í burtu. Þetta efni sem vindurinn flytur með sér er öflugur rofmáttur vegna þess að þetta efni getur sorfið berg og jarðveg í burtu og myndað ótal náttúrlegar myndir.