Eftir að aflveðrun hefur opnað berg eiga önnur veðrunaröfl auðveldara að vinna á því. Efnaveðrun gerist þegar berg grotnar niður vegna áhrifa efna sem verður í náttúrunni. Þessi efni geta t.d verið ammoníak, klórsambönd og sýrur eins og kolsýra sem finna má í regnvatni og grunnvatni. Þegar olía, jarðgas og kol eru brennd verður aukin losun koltvísýrings, nituroxíða og brennisteinsoxíða út í andrúmsloftið sem veldur súru regni. Efnaveðrun á sér stað í öllu bergi en gengur þó mun hraðar í hlýju og röku loftslagi.