Lífræn veðrun er þegar plöntur og dýr bora sig inn í berg eða skríða innum sprungur á bergi og losa um það. Skófir hafa líka mikið hlutverk í lífrænni veðrun vegna þess að þær gefa frá sér sýru sem leysir bergið upp þannig að það molnar og jarðvegur myndast. Svo eru það líka stór tré sem gefa frá sér sýrur með sömu afleiðingum og skófirnar valda. Ánamaðkar eru líka mikilvægur vinnukraftur í niðurbroti lífrænna leifa í jarðvegi.