Þegar hitamunur er í bergi þenst það út eða dregst saman svo ysta lagið flagnar af .Dæmi um aflverðun er sólsprenging og frostveðrun. Þegar frostveðrun á sér stað hefur vatn komist inn í sprungur í bergi og frosið þar og þegar það gerist þenst vatnið út og sprengir þannig ysta lag bergsins. Helstu afleiðingar frostveðrunar er oft hægt að sjá í grjótskriðum í háum fjöllum. Þegar snögg hitabrigði eiga sér stað, eins og þegar heit sólin kemur upp eftir kalda nóttina myndast spenna í berginu og það getur sprungið.